• Starfsreglur um móttöku sorps

    Starfsreglur um móttöku sorps

    Við flutning og móttöku sorps skal virða ákveðnar starfsreglur

     

    Meira

  • Rekstur urðunarstaðarins

    Rekstur urðunarstaðarins

    Daglegur rekstur

    Starfsmenn urðunarstaðarins eru tveir og er sorpmóttaka opin alla virka daga. Ekki er ætlast til að einstaklingar komi með sorp til urðunar heldur nýti sér næstu móttöku- eða flokkunarstöðvar sorps. Viðskiptavinir Norðurár bs. eru því fyrst og fremst rekstraraðilar móttökustöðvanna og aðrir stærri úrgangslosendur.

     

    Meira

  • Gerð og stærð urðunarstaðar

    Gerð og stærð urðunarstaðar

    Magntölur og stærðir

    Lóð urðunarsvæðisins er 30 ha en fyrsti áfangi urðunarhólfs er 2,7 ha. Samtals verða um 6 ha teknir undir urðunarhólf í fjórum áföngum. Hólfið er 20 m djúpt og útgrafið jarðefni í 1. áfanga er 390.000 m3. Gert er ráð fyrir að þessi áfangi endist í allt að sex ár en næstu áfangar hlutfallslega betur þar sem miðja hólfsins, sem verður fyllt upp í lokin, er hluti af fyrsta áfanga. Á árinu 2012 var grafið sérstakt hólf fyrir sláturúrgang. Var sú leið valin að grafa þann hluta hólfsins sem var áætlaður í síðasta áfanga. Hólfið er að rúmtaki um 35.000 m3 og gert ráð fyrir að mögulegt sé að urða allt að 21.000 tonn af sláturúrgangi í því á næstu árum.

    Þjónustuhús er um 65 m2 og þjónustuplan við það 1.200 m2. Bílvog er 18,3 m og miðast við allt að 100 tonn. 

    Meira

Norðurá bs

Norðurá bs er byggðasamlag sveitarfélaga í Skagafirði og Austur Húnavatnssýslu.

Fréttir